Í ljósi fordæmalausra aðstæðna hefur stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja ákveðið að færa afgreiðslu og samskipti yfir í síma og tölvupóst. Á skrifstofutíma er hægt að hringja í síma 481-1008 eða senda tölvupóst á [email protected] Öllum erindum verður svarað eins fljótt og mögulegt er og eftir aðstæðum hverju sinni.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem ofangreint kann að hafa í för með sér en þetta er gert með almannahagsmuni að leiðarljósi.
Virðingarfyllst.
Stjórn og starfsfólk Lífeyrissjóðs Vestmanneyja.





