Sjö stéttarfélög eiga aðild að LSV. Öllum atvinnurekendum með rekstur í þeim starfsgreinum sem stéttarfélögin sjö hafa gert kjarasamning um, er skylt að greiða lífeyrisiðgjöld starfsmanna sinna til samtryggingar LSV.
Ásamt stéttarfélögunum sjö eiga Samtök atvinnulífsins aðild að LSV
Iðgjöldin eru greidd í þeim hlutföllum sem viðkomandi kjarasamningur greinir. Aðild að LSV er þannig skyldubundin og óheimilt að greiða í samtryggingarsjóði annarra lífeyrissjóða.
Stéttarfélögin sem eiga aðild að LSV eru:
- Deild VR í Vestmannaeyjum,
- Drífandi stéttarfélag,
- FIT, Félag iðn- og tæknigreina, vegna félagsmanna í Vestmannaeyjum,
- Sjómannafélagið Jötunn,
- Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi,
- Verkstjórafélag Vestmannaeyja,
- VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, vegna félagsmanna í Vestmannaeyjum,