| Lífeyrissjóður Vestmannaeyja óskar eftir að ráða í stöðu bókara. Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi starf. Helstu starfs- og ábyrgðarsvið: Forgangsverkefni eru skráning í iðgjalda-/verðbréfakerfi, fjárhagsbókhald og önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra. Menntunar- og hæfniskröfur: Gerð er krafa um viðeigandi menntun, reynslu og þekkingu sem nýtist í starfinu. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðum samskiptahæfileikum eru kostir sem horft er til. Hlutastarf getur komið til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Jónsson framkvæmdastjóri. Umsækjendur skuli skila inn ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi í ráðningarkerfi Alfreð fyrir 22. júní n.k. |





