Samkvæmt lögum og kjarasamningum er skylduiðgjald í lífeyrissjóði 15,5% af launum. Hjá LSV fer allt iðgjaldið í samtryggingarsjóð en sjóðfélagi hefur þá val um að setja 3,5% í tilgreinda séreign sem ráðstafa má í hvaða lífeyrissjóð sem er. Þeir sem eru ekki sjóðfélagar hjá LSV geta þannig óskað eftir því að 3,5% af iðgjaldinu fari í tilgreinda séreign hjá LSV. Tilgreind séreign er erfanleg og er laus til útborgunar þegar sjóðfélagi hefur náð 62 ára aldri og dreifast þá greiðslur næstu 5 árin eða til 67 ára aldurs.
Borið hefur á því að ágengir sölumenn, ekki síst erlendra tryggingafélaga, hafa fengið sjóðfélaga LSV til að skrifa sig fyrir tilgreindri séreign. Ekki er þörf á því eins og fram kemur hér að ofan. Standi þrátt fyrir allt vilji til þess er viðkomandi bent á að skoða vel þann kostnað sem slík ráðstöfun hefur í för með sér. Að auki liggur fyrir að samkvæmt fjárfestingarheimildum sem gilda um tilgreinda séreign er einungis heimilt að fjárfesta allt að helmingi greiddra iðgjalda í erlendum gjaldmiðlum. Loforð um örugga erlenda ávöxtun standast því ekki.


