Lífeyrissjóður Vestmannaeyja óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf áhættustjóra á skrifstofu sjóðsins í Vestmannaeyjum. Í starfinu felast einnig önnu verkefni sem stjórn og framkvæmdastjóri fela honum. Áhættustjóri er lykilstarfsmaður hjá sjóðnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgði á starfssviði áhættustýringar, skipulagi og innra eftirliti.
- Greining mæling og vöktun áhættu, ásamt skýrslugjöf
- Umsjón og mótun áhættustefnu og áhættustýringarstefnu
- Eftirlit með markaðsáhættu, fjárfestingarákvörðunum og áreiðanleika gagna
- Heildaryfirsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðenda o.fl.
- Eftirlit með fylgni fjárfestinga við lög og fjárfestingastefnu sjóðsins
- Samskipti, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til eftirlitsaðila og stjórnenda
- Eftirlit með peningaþvætti, öryggisstefnu, verkferlum og stefnum sjóðsins
- Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri kann að fela honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði fjármála, verk- eða tölfræði
- Reynsla af fjármálamarkaði og áhættustýringu er kostur
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Hæfni til að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með skipulögðum hætti
- Góð færni í íslensku og ensku
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Jónsson framkvæmdastjóri á tölvupósti haukur@lsv.is eða í síma 481-1008. Umsóknir skulu berast framkvæmdastjóra og umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2024. Með umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.






