Samkvæmt grein 5.4 í samþykktum Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja skal kalla til fulltrúaráðsfundar tvisvar á ári að hausti og svo að vori fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að kalla til haustfundar fulltrúaráðsins miðvikudaginn 2. desember n.k. kl. 12:00.
Í ljósi samkomutakmarkanna og Covid19 verður fundurinn rafrænn, haldinn á Microsoft Teams. Linkur á fund verður sendur með fyrirvara í tölvupósti til fulltrúa fyrir fundinn.
Á fundinum verða kynntar lykiltölur úr afkomu sjóðsins og framvinda fjárfestingarstefnu, auk þess sem málefni sjóðsins verða rædd.