Lífeyrissjóður Vestmannaeyja hefur tekið í notkun nýjan og endurbættan sjóðfélagavef. Á vefnum getur þú nálgast upplýsingar er varða réttindi í samtryggingar- og séreignardeild ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum. Við hönnun vefsins var lögð áhersla á einfalda notkun og skýra framsetningu.
Við hvetjum sjóðfélaga til að skrá sig inná nýja sjóðfélagavefinn með rafrænum skilríkum.


