– Ef svo er, skaltu gera samning um séreignarsparnað
Ef þú lætur taka 2% af launum í séreignarsparnað greiðir launagreiðandi þinn jafn hátt framlag á móti skv. kjarasamningum. Þeir sem ekki taka þátt í séreignarsparnaði verða af launauppbót sem þegar er búið að semja um. Þegar fram í sækir myndast fjárhagslegt bil milli þeirra sem nýta sér sparnaðinn og þeirra sem sleppa honum.
Þeir einstaklingar sem eru að stíga sín fyrstu skref inn á fasteignamarkað geta nýtt sparnað sinn til að kaupa fasteign.
Því fyrr sem byrjað er að spara þess betra
Það eina sem þarf er samningur!

