Stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2020, og er hægt að nálgast hann hér.
Til upplýsinga fyrir sjóðfélaga verða hér birtar helstu niðurstöðutölur ársreikningsins.
Sjóðfélagar sem greiddu iðgjöld á árinu 2020 voru samtals 2.185. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem að jafnaði greiða til sjóðsins með reglubundnum hætti í hverjum mánuði voru 1.655.
Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2020, námu tæplega 1.797 milljónum króna sem er hækkun um 5,9% milli ára.
Heildar lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu rúmlega 2.075,4 milljónum króna sem er hækkun um 10,3% milli ára, eða 193,1 milljóna króna.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 70.384 milljónir króna í árslok 2020, sem er hækkun uppá 15,2% frá fyrra ári. Hrein eign séreignardeildar nam 822,2 milljónum króna sem er hækkun uppá 13,8% frá fyrra ári.
Hrein raunávöxtun sjóðsins er 11,63% á árinu m.v. 11,61% árið áður. Raunávöxtun séreignardeildar var jákvæð um 10,19%, safn I 7,47% og safn II 12,00%.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er jákvæð um 2.175 milljónir króna eða 2,6%, sem er betri staða en í árslok 2019 en þá var staðan neikvæð um 1.353 milljónir króna eða -1,7%.
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja verður haldinn í sal LSV að Skólavegi 2, miðvikudaginn 5. maí nk. Dagskrá fundarins er hægt að nálgast hér.

