Stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2025 sem hægt er að nálgast hér.
Til upplýsinga fyrir sjóðfélaga verða hér birtar helstu niðurstöðutölur ársreikningsins.
Sjóðfélagar sem greiddu iðgjöld á árinu 2025 voru samtals 2.204. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem að jafnaði greiða til sjóðsins með reglubundnum hætti í hverjum mánuði voru 1.758.
Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2025, námu 2.488,2 milljónum króna sem er hækkun um 4,9% milli ára.
Heildar lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu 3.939 milljónum króna sem er hækkun um 10,5% milli ára eða 375 milljóna króna.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 97.207 milljónir króna í árslok 2025 sem er hækkun um 1,9% frá fyrra ári. Hrein eign séreignardeildar nam 1.321 milljónum króna sem er hækkun um 9,3% frá fyrra ári.
Hrein raunávöxtun sjóðsins er -0,31% á árinu m.v. 4,57% árið áður. Raunávöxtun séreignardeildar var jákvæð um 0,84%, safn I 1,33% og safn II 0,51%.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er neikvæð um 8.141 milljónir króna eða 6,0% af heildarskuldbindingum en í árslok 2024 var staðan neikvæðum 3.779 millj.kr. eða 2,9%.
Hér má finna auglýsingu um starfsemi sjóðsins
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja verður haldinn í sal LSV að Skólavegi 2, mánudaginn 6. maí nk. klukkan 16:00.


