Stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024, og er hægt að nálgast hann hér.
Til upplýsinga fyrir sjóðfélaga verða hér birtar helstu niðurstöðutölur ársreikningsins.
Sjóðfélagar sem greiddu iðgjöld á árinu 2024 voru samtals 2.229. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem að jafnaði greiða til sjóðsins með reglubundnum hætti í hverjum mánuði voru 1.765.
Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2024, námu 2.372,4 milljónum króna sem er lækkun um 3,2% milli ára.
Heildar lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu 3.565 milljónum króna sem er hækkun um 11,9% milli ára, eða 380 milljóna króna.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 95.425 milljónir króna í árslok 2024, sem er hækkun um 10% frá fyrra ári. Hrein eign séreignardeildar nam 1.208 milljónum króna sem er hækkun um 14% frá fyrra ári.
Hrein raunávöxtun sjóðsins er 4,6% á árinu m.v. 0,17% árið áður. Raunávöxtun séreignardeildar var jákvæð um 1,8%, safn I 2% og safn II 1,6%.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er neikvæð um 3.779 milljónir króna eða 2,9% af heildarskuldbindingum en í árslok 2023 var staðan neikvæðum 6.522 millj.kr. eða 5,2%.
Hér má finna auglýsingu um starfsemi sjóðsins
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja verður haldinn í sal LSV að Skólavegi 2, mánudaginn 14. maí nk. klukkan 16:00.






