Samkvæmt grein 5.4 í samþykktum Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja skal kalla til fulltrúaráðsfundar tvisvar á ári, að hausti og svo að vori fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að kalla til vorfundar fulltrúaráðsins mánudaginn 4. maí n.k. kl. 12:00 í fundarsal sjóðsins að Skólavegi 2 Vestmannaeyjum.
Þeir sem óska eftir að vera á fjarfundi Teams vinsamlegast sendið ósk um þátttöku á haukur@lsv.is
Á fundinum verða kynntar lykiltölur úr afkomu sjóðsins, framvinda fjárfestingarstefnu auk þess sem málefni sjóðsins verða rædd.


