Sjóðfélagar geta nýtt viðbótarlífeyrissparnað sinn til að greiða inn á húsnæðislán þangað til samtals 120 mánaða ráðstöfunartíma er náð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem hafa nýtt úrræðið áður en eiga enn ónýttan tíma geta sótt um að nýju. Sjóðfélagar eru því hvattir til að kanna hvort þeir eigi ónýttan ráðstöfunartíma og bent á að það getur tekið lengri tíma en 10 ár að fullnýta úrræðið ef nýting var ekki samfelld á tímabilinu.
Allt að 500.000 krónur á ári.
Á árinu 2026 er heimilt að ráðstafa allt að 500.000 krónum á einstakling inn á húsnæðislán án þess að greiða tekjuskatt af fjárhæðinni. Hámarksfjárhæðin skiptist þannig:
- Eigið framlag: Allt að 4% af launum, að hámarki 333.000 krónur á ári.
- Framlag launagreiðanda: Allt að 2% af launum, að hámarki 167.000 krónur á ári.
Fjárhæðirnar verða uppfærðar árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Hverjir geta nýtt úrræðið?
Til að nýta heimildina þarf sjóðfélagi að eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í íbúðarhúsnæði, vera með skráð lögheimili þar og hafa húsnæðislán sem tryggt er með veði í eigninni. Heimildin gildir í allt að 120 mánuði samtals. Fyrri nýting sambærilegra úrræða kemur til frádráttar og þeir sem hafa þegar fullnýtt tíu ára heimildina geta ekki nýtt hana aftur. Sérstakt úrræði vegna kaupa á fyrstu íbúð er áfram í gildi.
Mikilvægt að sækja um fyrir 1. desember 2026.
Samkvæmt nýju lögunum geta umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilt afturvirkt frá 1. janúar 2026. Þeir sem vilja nýta heimildina vegna alls ársins þurfa því að gæta að þessum fresti. Umsóknir sem berast síðar gilda almennt frá og með umsóknarmánuði.
Hvar er sótt um?
Sótt er um ráðstöfun séreignarsparnaðar á þjónustuvef Skattsins. Í umsókninni þarf að tilgreina þann séreignarsjóð sem greiðslurnar eiga að koma úr og húsnæðislánið sem greiða á inn á. Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort í sínu lagi.
Hér getur þú sótt um.
Þeir sem nýttu eldra úrræði þurfa að sækja um aftur
Sjóðfélagar sem áður nýttu heimild til að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði inn á húsnæðislán í gegnum leidretting.is þurfa að sækja um að nýju vilji þeir nýta áframhaldandi heimild samkvæmt nýju lögunum. Fyrri nýting dregst frá 120 mánaða hámarksráðstöfunartímabili úrræðisins. Mikilvægt er að umsókn berist fyrir 1. desember 2026 til að heimildin geti gilt afturvirkt frá 1. janúar 2026.






