Lífeyrissjóði Vestmannaeyja ber nú að taka fullt tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun (TR) þegar örorkulífeyrir frá sjóðnum er reiknaður. Áhrifin á örorkugreiðslur frá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja eru mismunandi hjá hverjum og einum. Breytingin mun ekki hafa áhrif á örorkulífeyrisgreiðslur frá sjóðnum til sjóðfélaga nema í þeim tilfellum þar sem heildartekjur viðkomandi eru nú hærri en þær voru fyrir örorku. Ef breytingin hefur áhrif á greiðslur verður viðkomandi sjóðfélaga tilkynnt um það sérstaklega.
Fellt hefur verið úr gildi ákvæði í lögum sem bannaði lífeyrissjóðum að horfa til almennra hækkana á tekjum frá TR þegar örorkulífeyrisgreiðslur eru reiknaðar. Þar með gilda nú almennar reglur lífeyrissjóðslaga og samþykkta lífeyrissjóðsins um útreikning örorkulífeyris.
Tekjuathugun er framkvæmd ársfjórðungslega og horfir til meðaltekna 12 mánuði aftur í tímann. Í tekjuathugun fyrir greiðslu örorkulífeyris í desember 2025 getur þessi breyting haft áhrif og verður síðan innleidd ársfjórðungslega á næstu 12 mánuðum þar til fullt tillit er tekið til tekna frá TR.
Sjóðfélagar sem verða fyrir áhrifum eru hvattir til þess að hafa samband við sjóðinn varðandi frekari upplýsingar ásamt því að uppfæra tekjuáætlun sína hjá TR.






