Trúverðugleiki ríkisins sem viðsemjanda er í mikilli hættu vegna áforma ríkisins að slíta ÍL-sjóði. Ríkið birti áformaskjal í samráðsgátt stjórnvalda þar sem kynnt eru áform ríkisins um að standa ekki við gerða samninga og slíta ÍL-sjóði með það að markmiði að velta tjóni yfir á eigendur íbúðabréfa. Stærsti eigandi bréfanna eru lífeyrissjóðir og því er markmið ríkisins að láta sjóðfélaga bera skaða af. Ljóst er að óheimil áform ríkisins kæmu til með að baka því skaðabótaskyldu. Niðurstaða fjölda lögfræðilegra álitsgerða er öll á sama veg. Í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-78/2023, má sjá fjölda umsagna þar sem varað er við áformum ríkisins. Mikilvægt er að ríkið falli frá þessum áformum, gangist við ábyrgð sinni og hefji viðræður við eigendur bréfanna á réttum forsendum. Við eigum að geta treyst ríkinu sem viðsemjanda og orðspor íslenska ríkisins liggur hér að veði.
Hér má sjá umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða og umsögn sem unnin var fyrir fjölda lífeyrissjóða.
Hér má sjá umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða og umsögn sem unnin var fyrir fjölda lífeyrissjóða.
Aðrar umsagnir má nálgast á samráðsgátt stjórnvalda:





