Iðgjald atvinnurekenda í lífeyrissjóði fólks á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% 1. júlí 2018 í samræmi við ákvæði kjarasamninga ASÍ og SA og verður þá 11,5% en iðgjald launþega verður óbreytt áfram 4%, og verður þvi samtals 15,5%.
Gefst sjóðfélögum sem þess óska tækifæri til að ráðstafa að hluta eða öllu leyti iðgjaldi sem er umfram 12% í tilgreinda séreign.
Tilgreind séreign er önnur tegund séreignarsparnaðar en áður hefur boðist, um hana gilda aðrar reglur. Í 19. gr. samþykkta Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja er að finna ákvæði sem gilda um tilgreinda séreign.
- Allt viðbótariðgjaldið fer í samtryggingardeild nema sjóðfélagi óski eftir að því verði ráðstafað í tilgreinda séreign.
- Iðgjaldið greiðist til þess sjóðs sem sjóðfélagi á aðild að.
- Mikilvægt er að sjóðfélagar geri sér grein fyrir að réttindi í samtryggingardeild geta falið í sér verðmæt tryggingaréttindi.
- Með ráðstöfun iðgjalds í tilgreinda séreign ávinnst ekki, hvað þau iðgjöld snertir, réttur til ævilangs ellilífeyris, né örorku- og makalífeyris með framreikningi heldur byggir sjóðfélagi upp sjóð sem er séreign viðkomandi.
- Sjóðfélagi þarf að taka upplýsta ákvörðun um ráðstöfun iðgjalds og tilkynna sínum lífeyrissjóði um ráðstöfun iðgjaldsins.
- Sjóðfélagi má hvenær sem er breyta því hvernig hann ráðstafar iðgjaldi umfram 12%.
- Sjóðfélagar í LSV geta valið um tvær mismunandi fjárfestingarleiðir.
- Hægt verður að byrja að taka út tilgreindan séreignarsparnað fimm árum fyrir hefðbundinn lífeyristökualdur, en ekki þegar sextugsaldri er náð eins og gildir um annan séreignarsparnað.
- Tilgreindan séreignarsparnað er ekki unnt að nota til að safna skattfrjálst til húsnæðiskaupa eða til að greiða skattfrjálst niður húsnæðislán.
- Tilgreind séreign erfist
Í lögum, reglugerð og með vísan til dreifibréfs Fjármálaeftirlitsins dagsettu 7. júlí 2017, er gert ráð fyrir því að sjóðfélagi geti einnig ráðstafað iðgjaldi sem hann velur að renni í tilgreinda séreign til annars vörsluaðila lífeyrissparnaðar.
Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu sjóðsins eða í síma 481-1008.